Körfuknattleiksdeild Aftureldingar er stolt af því að tilkynna að undirritaður hefur verið samstarfssamningur við Birnu Kristínu Jónsdóttur, vottaðan markþjálfa. Birna Kristín var formaður Aftureldingar á árunum 2018-2024, gjaldkeri aðalstjórnar þrjú ár fyrir það og mjög virkur þátttakandi í íþróttastarfi félagsins sem sjálboðaliði, foreldri svo fátt eitt sé nefnt.
Samstarfið markar nýjan kafla í þjálfun og þróun leikmanna körfuknattleiksdeildar Aftureldingar, þar sem lögð verður áhersla á að efla andlega og huglæga hlið íþróttarinnar. Körfuknattleiksdeild Aftureldingar hefur það markmið að bjóða upp á frammúrskarandi þjónustu í heimabyggð og efla körfuboltasamfélagið í Mosfellsbæ. Það er trú stjórnar deildarinnar að með þessu samstarfi sé verið að hjálpa iðkendum að eflast enn frekar hvort sem það er í körfunni eða að efla einstaklinganna til góðra verka í samfélaginu og til framtíðar.
Samningurinn felur í sér að Birna Kristín mun vinna náið með elstu iðkendum, auk þjálfarateymi deildarinnar. En einnig mun deildin í samstarfi við Birnu halda vinnustofur fyrir iðkendur, foreldra og forráðamenn yngri flokka deildarinnar eftir áramót þar sem farið er í gegnum góð samskipti, góðar venjur og hvernig hægt er að verða betri liðsfélagi. Þjálfarar deildarinnar munu einnig hafa aðgang að Birnu með ráðgjöf.
Markmiðið deildarinnar er að styrkja leikmenn í að ná hámarksárangri á vellinum sem og í lífinu almennt með því að:
- Efla sjálfsþekkingu og sjálfstraust
- Efla styrkleika og vera meðvitaður um veikleika
- Kenna árangursríkar aðferðir í streitustjórnun og fókus
- Styrkja hópinn og bæta samskipti
Körfuknattleiksdeild Aftureldingar hefur ávallt lagt metnað sinn í heildræna nálgun á íþróttaþjálfun. Með þessu samstarfi er tekið mikilvæg skref í að veita iðkendum fleiri verkfæri sem þarf til að blómstra í sínu íþróttaumhverfi.
“Við erum himinlifandi með að fá Birnu til liðs við okkur,” segir Sævaldur Bjarnason yfirþjálfari KKD-Aftureldingar. “Andlegur styrkur, hugarþjálfun og seigla er jafn mikilvæg eða mikilvægari en líkamlegur styrkur í nútíma íþróttum. Við erum sannfærð um að reynsla Birnu og þekkinn hennar á umhverfinu í Aftureldingu muni hjálpa okkar leikmönnum að taka stór framfaraskref. Þetta er fjárfesting í framtíðinni.”
Birna Kristín segist hlakka til samstarfsins: “Ég hef mikla trú á starfi Aftureldingar og hvernig deildin hugsar um sína iðkendur. Ég mun leggja mig alla fram við að styðja við þá frábæru vinnu sem þegar er í gangi og hjálpa leikmönnum að opna nýjar dyr í sínum hugarheimi til að ná markmiðum sínum. Ég er ótrúlega stolt af körfunattleiksdeildinni að fara í þessa vegferð og efla andlega þjálfun. Saman munum við skapa öflugan og þrautseigan íþróttamann.”



