Út er kominn nýjasti þátturinn af Run and Gun með fyrrum þjálfaranum og fjölmiðlamógúlnum Máté Dalmay.
Með Máté í þessum síðasta þætti eru Steinar Aronsson stuðningsmaður Vals og prinsinn af Álftanesi, Gunnar Bjartur Huginsson.
Upptökuna er hægt að nálgast hér á Spotify og þá er hægt að horfa á þáttinn á YouTube hér fyrir neðan, en í honum er meðal annars farið yfir sviðið í Bónus deild karla.
Meðal þess sem er til umræðu er kraftröðun fyrir deildina, en í henni eru Grindavík taldir sterkasta liðið, Tindastóll þar á eftir og Keflavík þeir þriðju sterkustu.
Sé litið á hinn enda töflunnar er Ármann í neðsta sætinu, ÍA í 11. sætinu og Þór 10. sterkasta lið deildarinnar.
Kraftröðunina er hægt að sjá hér fyrir neðan.




