Nýliðar ÍA hafa samið við Ilija Đoković fyrir yfirstandandi átök í Bónus deild karla.
Ilija er 28 ára 188 cm serbneskur leikstjórnandi með reynslu frá sterkum liðum í Evrópu, m.a. Rúmeníu, Grikklandi, Ungverjalandi og heimalandinu Serbíu.
Þá hefur hann leikið 8 A-landsleiki fyrir Serbíu og á að baki fjölmarga landsleiki með yngri landsliðum þeirra. Ilija er samkvæmt tilkynningu ÍA þekktur fyrir öflugan leikskilning, sterka vörn og yfirvegaða stjórn á leikjum.
„Við erum mjög ánægð að fá Ilija til félagsins“, segir Birkir Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar ÍA.
„Hann kemur inn með gæði, reynslu og leiðtogahæfileika sem munu styrkja hópinn verulega. Við höfum fulla trú á að hann verði mikilvægur hlekkur í liðinu og hjálpi okkur í baráttunni sem framundan er”.



