Komandi helgi mun meistarakeppni KKÍ fara fram.
Kvennaleikurinn er á milli Íslandsmeistara Hauka og bikarmeistara Njarðvíkur á Ásvöllum komandi laugardag. Karlaleikurinn er svo á sunnudag á milli Íslandsmeistara Stjörnunnar og bikarmeistara Vals í Garðabæ.
Miðasala á báða leiki fer fram í gegnum smáforritið Stubb.
Meistarakeppni kvenna:
Haukar – Njarðvík
Laugardagurinn 27. september kl.19:15
Ásvellir
Meistarakeppni karla:
Stjarnan – Valur
Sunnudagurinn 28. september kl.19:15
ÞG Verk höllin



