Grindavík hefur samið við Savvina Karali fyrir komandi leiktíð í Bónus deild kvenna. Staðfestir félagið þetta með færslu á samfélagsmiðlum.
Savvina er 166 cm 24 ára grískur leikstjórnandi sem leikið hefur í A1 deildinni í heimalandinu síðustu tvö tímabil.