spot_img
HomeFréttirLögðu Portúgal í æfingaleik fyrir A deildina

Lögðu Portúgal í æfingaleik fyrir A deildina

Undir 20 ára lið kvenna leikur í A deild Evrópumótsins í Matosinhos nú í byrjun ágúst.

Liðið hélt út nú um helgina og mun næstu daga vera við æfingar ytra, en fyrsta æfingaleik sinn unnu þær gegn Portúgal í kvöld, 54-57.

Stigahæst fyrir Ísland í leiknum var Kolbrún María Ármannsdóttir með 12 stig.

Tölfræðiblað

Fyrsti leikur Íslands á mótinu er gegn Svíþjóð 2. ágúst, en í millitíðinni á liðið eftir að leika einn æfingaleik til gegn sterku liði Spánar.

Lið Íslands í Matosinhos

Fréttir
- Auglýsing -