spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaFramlengir til 2027 í Síkinu ,,Frábært fyrir okkur að styrkja íslenska kjarnann”

Framlengir til 2027 í Síkinu ,,Frábært fyrir okkur að styrkja íslenska kjarnann”

Tindastóll hefur samið við Davis Geks til næstu tveggja ára. Staðfestir félagið þetta á samfélagsmiðlum.

Davis kom tim Tindastóls fyrir tveimur tímabilum, en nú í sumar fékk hann íslenskan ríkisborgararétt og mun hann því leika sem íslenskur leikmaður í Bónus deildinni á komandi tímabili.

Arnar þjálfari segir: “Það er frábært fyrir okkur að styrkja íslenska kjarnann með Davis Geks, hann hefur margsannað sig sem einn af betri skotmönnum deildarinnar og eftir því sem ég hef heyrt að norðan er þetta frábær drengur og duglegur til sjós. Ég er mjög spenntur að fá að vinna með kauða.”

Davis, sem hefur ásamt fjölskyldu sinni verið búsettur á Sauðárkróki undanfarin ár, segist glaður og spenntur að halda áfram að spila með liði Tindastóls “Það er frábært að vera hluti af svona frábæru samfélagi og metnaðarfullu körfuboltafélagi. Síðasta tímabil var næstum fullkomið – látum næsta tímabil verða alveg fullkomið!”

Fréttir
- Auglýsing -