Undir 18 ára stúlknalið Íslands leikur þessa dagana á Evrópumótinu í Litháen. Liðinu hefur gengið ágætlega á mótinu, en í dag leika þær um fimmta sæti þess.
Að öðrum ólöstuðum hefur Kolbrún Ármannsdóttir verið einn af betri leikmönnum liðsins á mótinu og hefur sem slík verið tilnefnd sem ein af verðmætustu leikmönnum þess. Á hlekknum hér fyrir neðan er hægt að kjósa hana, en í leikjunum hefur hún skilað 17 stigum, 9 fráköstum, 4 stoðsendingum og 2 stolnum boltum að meðaltali á 27 mínútum spiluðum í leik.
Hérna er hægt að kjósa Kolbrúnu



