spot_img
HomeFréttir8-liða úrslitum Lýsingarbikarkeppninnar lýkur í kvöld

8-liða úrslitum Lýsingarbikarkeppninnar lýkur í kvöld

13:07 

{mosimage}

 

 

Í kvöld lýkur 8-liða úrslitum Lýsingarbikarkeppni karla með tveim leikjum.

Í Seljaskóla má búast við hörkuleik þegar heimamenn taka á móti Skallagrímsmönnum. Þessi sömu lið áttust við í Iceland Express deildinni 29.des sl. og þá sigruðu ÍR með 13 stiga mun. Skallagrímsmenn eru mun ofar í deildinni en það er ekki alltaf spurt að því þegar um bikarleiki er að ræða.

Á Selfossi tekur svo 1.deildarlið FSu á móti Keflvíkingum.

Báðir leikir hefjast klukkan 19:15

Grindavík og Hamar/Selfoss eru þegar komin áfram í undanúrslit.

Í Lýsingarbikar kvenna eru Hamar, Haukar, Grindavík og Keflavík komin í undanúrslit.  

www.kki.is

Fréttir
- Auglýsing -