HomeFréttir6 dagar í EuroBasket - Good luck Kristófer Acox

6 dagar í EuroBasket – Good luck Kristófer Acox

 

Það fer heldur betur að styttast í stóru stundina. Í dag eru einungis 6 dagar í að Ísland hefji leik á lokamóti Eurobasket 2017 og það í annað skiptið í röð. 

 

Þann 31. ágúst klukkan 13:30 á íslenskum tíma stígur Ísland á völlinn gegn sterku liði Grikklands. Það verður fyrsti leikur Íslands af fimm leikjum á átta dögum.

 

Karfan.is mun hita vel upp fram að móti og telja niður dagana til að stytta biðina. Í dag eru einungis 6 dagar í fyrsta leik Íslands á mótinu. Leikmaður númer 6 hjá íslenska landsliðinu er Kristófer Acox. Leikmaður sem að var svo sannrlega í umræðunni um að komast með liðinu á lokamót EuroBasket 2015, en þá stóð skólinn hans, bandaríski Furman háskólinn, í vegi fyrir að svo gæti orðið.

 

Nú er Kristófer búinn með þann skóla (spilaði með KR í lok síðasta tímabils) og því ætti ekkert að standa í vegi fyrir því að hann fari með liðinu á lokamótið í Finnlandi nú í lok mánaðar. Kristófer spilaði með liðinu í undnkeppni þessa móts og þrátt fyrir að kappinn hafi oftar en ekki troðið tuðrunni eftirminnilega, er þó líklega eftirminnilegast þegar að forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson heilsaði honum á sérstakan hátt.

 

 

Á þetta benti Kristófer með færslu á Twitter:

 

 

 

Eins og góðum forseta sæmir, baðst forsetinn forláts á þessu um leið og hann sá villu síns vegar:

 

 

Þó ekkert einsdæmi að forsetar séu ekki með sömu kveðjur til leikmanna liða, eins og Siggi Bryjólfs bendir á með þessari mynd af fyrrum forseta Bandaríkjanna, Barack Obama og landsliði þeirra:

 

 

Hér má sjá upptöku af atvikinu:

 

Hérna er umfjöllun Nútímans um atvikið

Fréttir
- Auglýsing -