Í dag, á lokadegi bikarhátíðarinnar, fara fram 5 úrslitaleikir. Unglingaflokkar karla og kvenna mætast, 9. flokkar stúlkna og drengja og 10. flokkur drengja. Allir eru leikirnir í beinni útsendingu, unglingaflokksleikirnir á RÚV og hinir á ruv.is. Einnig verður hægt að fylgjast með lifandi tölfræði af kki.is, sem og öllum helstu fréttum hér á karfan.is.
Leikir dagsins:
09:45 9. flokkur drengja – Valur Vestri í beinni á ruv.is
11:45 10. flokkur drengja – Þór Ak. Stjarnan í beinni á ruv.is
13:45 Unglingafl. kvenna – Keflavík Haukar í beinni á RÚV
16:00 Unglingafl. karla – Tindastóll KR í beinni á RÚV
18:15 9. flokkur stúlkna – Grindavík Keflavík í beinni á ruv.is