Það fer heldur betur að styttast í stóru stundina. Í dag eru einungis tveir dagar í að Ísland hefji leik á lokamóti Eurobasket 2017 og það í annað skiptið í röð.
Þann 31. ágúst klukkan 13:30 á íslenskum tíma stígur Ísland á völlinn gegn sterku liði Grikklands. Það verður fyrsti leikur Íslands af fimm leikjum á átta dögum.
Karfan.is mun hita vel upp fram að móti og telja niður dagana til að stytta biðina. Í dag eru einungis tveir dagar í mótið og því við hæfi að hita upp með brotum úr leikjum Íslands á síðasta lokamóti EM.