Það fer heldur betur að styttast í stóru stundina. Í dag eru einungis 19 dagar í að Ísland hefji leik á lokamóti Eurobasket 2017 og það í annað skiptið í röð.
Þann 31. ágúst klukkan 13:30 á íslenskum tíma stígur Ísland á völlinn gegn Giannis Antetokounmpo og félögum í Grikklandi. Það verður fyrsti leikur Íslands af fimm leikjum á átta dögum.
Karfan.is mun hita vel upp fram að móti og telja niður dagana til að stytta biðina. Íslenska liðið fór ekki auðvelda leið að Eurobasket 2017. Eftir tap í Sviss í fjórða leiknum minnkuðu möguleikar Íslands nokkuð er liðið kom til Íslands fyrir síðustu tvo leikina. Sigur gegn Kýpur hélt voninni lifandi en Ísland tryggði sér á mótið með ótrúlegum sigri á Belgíu í síðasta leiknum.
Leikurinn gegn Kýpur var nokkuð auðveldur en Ísland lék vel í leiknum. Kristófer Acox lét Kýpverja heldur betur finna fyrir því með ótrúlegri troðslu í undankeppninni. Meistararnir á Leikbrot.is settu saman frábært myndband þar sem troðslan er sýnd í draugsýn.