Landsliðsþjálfarar Íslenska landsliðsins hafa kynnt sautján manna hóp fyrir fyrir leikinn gegn Finnlandi í undankeppni HM á morgun. Þetta var tilkynnt í fréttatilkynningu rétt í þessu.
Á blaðamannafundi á þriðjudaginn tilkynntu forráðamenn liðsins 17 manna hóp, en ljóst er að Breki Gylfason, Emil Barja, Hjálmar Stefánsson og Ragnar Nathanaelsson leika ekki á morgun.
Þá meiddist Kári Jónsson á fingur á æfingu fyrr í dag og er því ekki með þess vegna.
Íslenska landsliðið mætir Finnlandi á morgun og Tékklandi á sunnudag. Miðasala er hafin á Tix.is en stuðningsmannasveitir eru að undirbúa sig fyrir leikinn og búist við mikilli stemmningu.
| # | Nafn | Lið | F. ár | Staða | Hæð | Landsleikir |
| 1 | Martin Hermannsson | Chalon Reims, Frakkland | 1994 | B | 194 | 58 |
| 6 | Jakob Örn Sigurðarson | Boras Basket, Svíþjóð | 1982 | B | 190 | 90 |
| 7 | Pétur Rúnar Birgisson | Tindastóll | 1996 | B | 186 | 5 |
| 8 | Hlynur Bæringsson | Stjarnan | 1982 | M | 200 | 118 |
| 9 | Jón Arnór Stefánsson | KR | 1982 | SB | 196 | 96 |
| 13 | Hörður Axel Vilhjálmsson | Keflavík | 1988 | B | 194 | 70 |
| 14 | Logi Gunnarsson | Njarðvík | 1981 | SB | 192 | 145 |
| 15 | Pavel Ermolinskij | KR | 1987 | F | 202 | 67 |
| 19 | Kristófer Acox | KR | 1993 | F | 198 | 32 |
| 21 | Ólafur Ólafsson | Grindavík | 1990 | F | 194 | 22 |
| 24 | Haukur Helgi Pálsson Briem | Cholet Basket, Frakkland | 1992 | F | 198 | 63 |
| 34 | Tryggvi Snær Hlinason | Valencia, Spánn | 1997 | M | 216 | 25 |




