spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 202112 manna hópur Íslands gegn Belgíu - Fjórar breytingar á liðinu

12 manna hópur Íslands gegn Belgíu – Fjórar breytingar á liðinu

Ísland sigraði Portúgal með 24 stigum, 91-67, í undankeppni EuroBasket 2021 í Laugardalshöllinni í gærkvöldi. Leikurinn annar tveggja sem liðið spilar í þessum glugga, en sá seinni er gegn Belgíu ytra komandi sunnudag.

Craig Pedersen og þjálfaralið hans tilkynntu rétt í þessu hvaða 12 leikmenn það væru sem spiluðu leikinn úti í Belgíu.

Fjórar breytingar eru á hópnum. Þeir Jón Arnór Stefánsson og Hlynur Bæringsson léku báðir sinn síðasta leik í gærkvöldi og eru því ekki með liðinu. Þá fara Haukur Helgi Pálsson og Sigtryggur Arnar Björnsson heldur ekki með því til Belgíu. Inn í staðinn fyrir þessa fjóra koma Hakur Óskarsson, Collin Pryor, Kristinn Pálsson og Maciej Baginski.

 

# Leikmaður                     F.ár    Cm.     Staða Félag Landsleikir

0 Haukur Óskarsson          1991    194 SG Haukar 3

1 Collin Pryor                    1990 195 PF Stjarnan 3

2 Dagur Kár Jónsson          1995    185 PG Raiffeisen (AUT) 1

5 Gunnar Ólafsson             1993    192 F Keflavík 9

10 Elvar Már Friðriksson     1994    186 PG Njarðvík 37

13 Hördur Axel Vilhjálmsson 1988    196 PG Keflavík 77

14 Kristinn Pálsson             1997    197 SG Njarðvík 8

15 Martin Hermannsson       1994    194 PG Alba Berlin (GER) 64

19 Kristófer Acox                 1993    198 PF KR 39

22 Macjiej Baginski              1995    190 F Njarðvík 5

23  Hjálmar Stefánsson        1996    199 F Haukar

34 Tryggvi Snær Hlinason     1997    215 C Obradorio (ESP) 32

Þjálfari: Craig Pedersen

Aðstoðarþjálfari: Baldur Þór Ragnarsson

Sjúkraþjálfari: Halldór Fannar Júlíusson

Fararstjóri: Kristinn Geir Pálsson

Fréttir
- Auglýsing -