spot_img
HomeFréttir100 þristar hjá Brynjari

100 þristar hjá Brynjari

{mosimage}

Brynjar Þór Björnsson, fyrirliði 18 ára liðs karla, náði þeim stóra áfanga á Norðurlandamótinu í Svíþjóð í lok maí að skora sína hundruðustu þriggja stiga körfu fyrir íslensku yngri landsliðin. Brynjar hefur leikið 44 landsleiki fyrir 16 ára (21) og 18 ára (23) landsliðin og skorað í þeim 689 stig eða 15,7 stig að meðaltali í leik. 315 þessarra stiga hafa komið með skotum fyrir utan þriggja stiga línuna en Brynjar hefur skorað 105 þrista fyrir Ísland eða 2,4 að meðaltali í hverjum landsleik. 

Brynjar Þór skoraði hundruðustu þriggja stiga körfu sína í eins stigs sigri á Dönum, 95-95, 26. maí en hann skoraði alls fjóra þrista í þessum leik sem tryggði liðinu sæti í úrslitaleiknum á mótinu. Brynjar og félagar unnu síðan heimamenn í Svíþjóð í úrslitaleiknum og tryggðu sér Norðurlandameistaratitilinn í annað sinn á tveimur árum. Brynjar er eini fyrirliðinn sem hefur tekið við tveimur Norðurlandameistarabikurum fyrir Íslands hönd en hann var fyrirliði 1988-liðsins í bæði skiptin. 

Brynjar Þór og félagar eru á leiðinni til Grikklands á morgun, laugardag, þar sem að þeir eru að fara spila í A-deild Evrópukeppni 18 ára liða. Fyrsti leikur liðsins verður gegn Spánverjum 18. júlí en í riðli Íslands eru einnig Króatar og Frakkar þannig að það bíður íslensku strákanna verðugt verkefni.  Brynjar er þarna á leiðinni í sína fimmtu Evrópukeppni og hefur alls leikið 26 landsleiki í Evrópukeppni.

Brynjar hefur tekið þátt í að koma íslenska liðinu upp í A-deild tvö sumur í röð, fyrst 16 ára liðinu 2004 og svo 18 ára liðinu í fyrra. Nú spilar Brynjar í fyrsta sinn meðal þeirra bestu í sínum árgangi og það verður gaman að sjá hvernig honum og félögum hans gengur í Grikklandi. 

Stig og þristar Brynjars fyrir yngri landslið Íslands:  

16 ára lið karla Samtals: 21 leikur, 347 stig, 45 þristar (16,5 stig/2,1 þristar í leik) Á Norðurlandamóti: 5 leikir/90 stig/10 þristar (18,0/2,0) Í Evrópukeppni: 13 leikir/241 stig/31 þristur (18,5/2,4) Í æfingalandsleikjum: 3 leikir/16 stig/4 þristar (5,3/1,3) 

18 ára lið karla Samtals: 23 leikir, 342 stig, 60 þristar (14,9/2,6) Á Norðurlandamóti: 10 leikir/204 stig/35 þristar (20,4/3,5) Í Evrópukeppni: 13 leikir/138 stig/25 þristar (10,6/1,9) 

Yngri landslið karla Samtals: 44 leikir, 689 stig, 105 þristar (15,7/2,4)Á Norðurlandamóti: 15 leikir/294 stig/45 þristar (19,6/2,0) Í Evrópukeppni: 26 leikir/379 stig/56 þristar (14,6/2,2)

Í æfingalandsleikjum: 3 leikir/16 stig/4 þristar (5,3/1,3)

Frétt af www.kki.is

Mynd: [email protected]

 

Fréttir
- Auglýsing -