spot_img
HomeFréttir1. deild karla hefst í kvöld með þremur leikjum

1. deild karla hefst í kvöld með þremur leikjum

12:30

{mosimage}

1. deild karla hefst í kvöld með þremur leikjum. Strax klukkan 19:30 hefst fyrsti leikurinn þegar Haukar taka á móti Val á Ásvöllum en þetta er fyrsti leikur Hauka í 1. deild síðan 20. mars 1983 þegar þeir sigruðu Þór Ak í lokaleik 1. deildar það árið.

Klukkan 20 hefjast svo tveir leikir. Í Þorlákshöfn er suðurlandsslagur þegar Þór tekur á móti FSu og í Sandgerði taka nýliðar Reynis á móti því liði sem flestir spá sigri í deildinni, Breiðablik.

Það er um að gera fyrir þá sem ætla ekki á leiki í Iceland Express deild karla að kíkja á 1. deildina.

[email protected]

Mynd: [email protected]

 

Fréttir
- Auglýsing -