Það var mikið um að vera hjá yngri landsliðum Íslands í körfubolta í dag þegar þrír mikilvægir leikir fóru fram á alþjóðlegum vettvangi.
Drengja- og stúlknalandsliðin skipuð leikmönnum undir 16 ára aldri léku bæði gegn Danmörku á Norðurlandamótinu í Kisakallio í Finnlandi. Á sama tíma lauk undir 20 ára landslið kvenna riðlakeppni sinni á Evrópumótinu í Alytus í Litháen með frábærum hætti.
Undir 16 ára lið drengja hóf leik þess dags gegn Dönum en varð að játa sig sigrað með 62 stigum gegn 95. Strákarnir hafa nú unnið tvo leiki og tapað tveimur á mótinu en atkvæðamestur í íslenska liðinu í dag var Davíð Antonsson sem skoraði 20 stig og tók sex fráköst. Íslenska liðið á enn góða möguleika á að tryggja sig á verðlaunapall þegar þeir spila lokaleik sinn á mótinu á morgun gegn heimamönnum í Finnlandi.
Í öðrum leik dagsins mætti undir 16 ára lið stúlkna sömuleiðis liði Danmerkur og fór svo að þær töpuðu leiknum með 67 stigum gegn 88. Eva Óladóttir dró vagninn fyrir íslenska liðið í leiknum en hún skilaði 18 stigum og tók fjögur fráköst. Stúlkurnar hafa nú unnið einn leik og tapað þremur á mótinu og munu því berjast í neðri hluta keppninnar þetta árið.
Lokaleikur dagsins var í höndum undir 20 ára landsliðs kvenna á Eurobasket í Litháen þar sem liðið tryggði sér stórglæsilegan og frækinn sigur gegn Ítalíu í lokaleik riðilsins, 86-79. Ísland vann Serbíu í fyrsta leik, tapaði gegn Póllandi í öðrum leik en með sigrinum á Ítalíu í dag endar liðið í öðru sæti riðilsins og tryggir sér sæti í 16-liða úrslitum þar sem þær mæta Tyrklandi á morgun, miðvikudag. Berglind Katla Hlynsdóttir átti stórkostlegan leik fyrir Ísland en hún skoraði 32 stig, tók sex fráköst, gaf sjö stoðsendingar og var með 38 í framlag, sem er sérstaklega magnaður árangur í ljósi þess að hún er aðeins 16 ára gömul og gæti samkvæmt aldri verið að spila með undir 16 ára liðinu á Norðurlandamótinu í Finnlandi.




