Nýtt félag Vestra í 1. deild karla hefur samið við Bandaríkjamanninn Yima Chia-Kur um að leika með liðinu á yfirstandandi tímabili. Vonast er til þess að leikheimild fyrir leik gegn Hetti þann 29. næstkomandi. Yima er 30 ára gamall framherji og því maður með reynslu, hefur komið víða við síðan að hann útskrifaðist úr Arkansas State háskólanum í Bandaríkjunum.
Fréttatilkynning Vestra:
Körfuknattleiksdeild Vestra hefur samið við bandaríska leikmanninn Yima Chia-Kur. Yima er 30 ára gamall tæplega tveggja metra hár framherji. Hann útskrifaðist úr Arkansas State háskólanum þar sem hann lék í NCAA deildinni. Hann býr yfir mikilli reynslu af atvinnumennsku og hefur leikið Venesúela, Dubai, Þýskalandi, Portúgal, Marokkó, Frakklandi og nú síðast á Spáni.
Yima er þó ekki kominn með leikheimild en vonast er til að hann verði klár fyrir leik félagsins gegn Hetti 29. október næstkomandi.
Myndband:




