Leiðir ÍA og framherjans Josip Barnjak hafa skilið samkvæmt tilkynningu frá félaginu.
Josip kom til nýliða ÍA fyrir yfirstandandi tímabil og þakkar félagið honum í tilkynningu fyrir vel unnin störf bæði innan sem utan vallar.
Tilkynning:
Josip Barnjak hefur leikið sinn síðasta leik fyrir ÍA. Við viljum þakka Josip kærlega fyrir allt það sem hann lagði til liðsins, bæði innan vallar sem utan og óskum honum alls hins besta í komandi verkefnum.




