Hin unga og efnilega Hulda María Agnarsdóttir leikmaður Njarðvíkur hefur skuldbundið sig til að hefja nám og leika körfubolta með Florida Gulf Coast University (FGCU) í bandaríska háskólaboltanum. Hún mun þó ekki yfirgefa Njarðvík fyrr en eftir komandi tímabil og gengur til liðs við Eagles fyrir 2027-28 leiktíðina.
Hulda tilkynnti ákvörðun sína á samfélagsmiðlum þar sem hún lýsti yfir mikilli eftirvæntingu fyrir komandi kafla með FGCU Eagles. Þakkaði hún fjölskyldu, þjálfurum, liðsfélögum og vinum kærlega fyrir stuðninginn og traustið í gegnum tíðina og kvaðst spennt fyrir að leggja hart að sér, þróast sem leikmaður og hefja slaginn í NCAA.




