Hamar hefur tilkynnt að Daði Berg Grétarsson muni ekki halda áfram sem þjálfari meistaraflokks félagsins. Stjórn nýtti sér uppsagnarákvæði í samningi hans að tímabili loknu.
Eftir að flautað var til leiksloka á tímabilinu fóru stjórn félagsins og Daði Berg yfir stöðuna. Niðurstaðan varð sú að nýta glugga sem var í samningi þjálfarans og munu leiðir því skilja að svo stöddu.
Í tilkynningu frá Hamri er Daða þakkað kærlega fyrir vel unnin störf í Hveragerði:
„Daði vann vel, lagði sig allan fram í verkefnið og sýndi félaginu mikla fagmennsku og metnað. Við erum þakklát fyrir hans framlag og óskum honum alls hins besta í framtíðinni.“
Daði Berg hefur verið ötull í sínum störfum fyrir félagið og sýnt mikið lag við uppbyggingu, en nú tekur við nýr kafli hjá báðum aðilum. Ekki liggur fyrir hver tekur við þjálfun liðsins en búast má við fréttum af því innan tíðar enda undirbúningur fyrir næsta tímabil þegar hafinn í Hveragerði.




