Yfirgefa Garðabæinn

Baldur Þór Ragnarsson og Ilija Omercen aðstoðarþjálfari hafa lokið störfum hjá Stjörnunni eftir að Baldur ákvað að nýta uppsagnarákvæði í samningi sínum. Baldur, sem gerði Garðbæinga að Íslandsmeisturum árið 2025, kveður félagið eftir tveggja ára starf en hann átti upphaflega eitt ár eftir af samningi sínum.

Brottförin kemur í kjölfar tímabils þar sem Stjarnan tapaði bikarúrslitaleik og féll úr leik í undanúrslitum Íslandsmótsins gegn Tindastóli. Baldur býr yfir víðtækri reynslu úr efstu deild hérlendis og sem aðstoðarþjálfari í Þýskalandi, en nú er ljóst að nýtt þjálfarateymi mun taka við keflinu í Garðabæ.

Fréttir
- Auglýsing -