HomeFréttirWatson: Um leið og ég skaut vissi ég að þetta færi niður

Watson: Um leið og ég skaut vissi ég að þetta færi niður

,,Ég var ekki alveg viss um hvað væri mikið eftir, vissi að þetta voru um fjórar sekúndur og um leið og ég sleppti boltanum var ég viss um að þetta færi niður,“ sagði Giordan Watson sæll með Grindavíkursigurinn í Hellinum í kvöld. Watson setti niður sigurkörfu Grindavíkur í leiknum um leið og lokaflautið gall og Grindvíkingar unnu leik þar sem þeir voru undir í einhverjar 39 mínútur!
,,Um leið og ég náði skotinu þá vissi ég að þetta færi niður, ég var samt áhyggjufullur því ég var ekki alveg með á hreinu hvað væri mikið eftir þegar ég skaut. Þetta var subbulegt framan af hjá okkur, ÍR mættu grimmir til leiks og það má alveg segja að þeir hafi á einhverjum tímapunkti verðskuldað sigur en við lönduðum þessu.“
 
Grindavík fékk á sig 37 stig í fyrsta leikhluta og Watson var eins og gefur að skilja ekki sáttur við það. ,,Við megum ekki byrja svona illa, við bara megum það ekki og við ræðum þetta mikið. Við náðum að bjarga þessu með hverri mínútunni í leiknum en ÍR náði góðu forskoti á okkur sem við vorum allan leikinn að vinna niður,“ sagði Watson en geta Grindvíkingar verið að stóla á að Bullock skori 51 stig í öllum leikjum? Verða menn ekki að stíga betur upp með honum?
 
,,Þetta var ótrúleg frammistaða og við getum ekki vænst þess að hann skori alltaf 51 stig en miðað við vinnsluna á honum í kvöld bar okkur skylda til þess að koma á hann boltanum. Hann var ekkert þreyttur og bar okkur til sigurs.“
 
 
   
Fréttir
- Auglýsing -