Haukar unnu fimm stiga útisigur á Val, 90–85, í fjórðu umferð Bónus deildar kvenna í kvöld eftir mikinn baráttuleik þar sem forystan skipti ítrekað um hendur allt fram á lokamínúturnar.
Með sigrinum komust Haukar upp í fjórða sæti deildarinnar á meðan Valur fellur niður í sjöunda sæti, en bæði lið eru nú jöfn með fjögur stig.
Í spilaranum hér að neðan má sjá viðtal við Jamil Abiad, þjálfara Vals, sem ræddi leikinn og spilamennsku síns liðs í leikslok.




