Ísland lenti í miklu mótlæti gegn feiknasterku liði Tyrklands í Laugardalshöllinni í kvöld og lauk leiknum með öruggum sigri gestanna, 73–110.
Tyrkir tóku völdin strax í upphafi leiks, leiddu 37–60 í leikhléi og héldu áfram að auka muninn í síðari hálfleik. Íslenska liðið reyndi hvað það gat en skotnýting Tyrkja var afar erfið viðureignar. Kristinn Pálsson og Martin Hermannsson voru stigahæstir hjá Íslandi með 11 stig hvor og Styrmir Snær Þrastarson skilaði 10 stigum af bekknum.
Craig Pedersen, landsliðsþjálfari Íslands, mætti í viðtal í Laugardalshöllinni strax að leik loknum þar sem hann ræddi frammistöðu liðsins og fór yfir það sem fór úrskeiðis gegn sterku tyrknesku liði. Viðtalið við Craig má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan.




