Úrslitakeppnin í Dominos deild karla hófst í kvöld með einum leik. Það mættust Íslands- og bikarmeistarar KR og nýliðar Þórs frá Akureyri. Flestir bjuggust við sigri KR í kvöld og það nokkuð örugglega. Þeir urðu ekki fyrir vonbrigðum þar sem KR stakk af í seinni hálfleik með frábærum varnarleik.
Er Benni Gumm í skyrtu !?!?_x1f633_#korfubolti #dominos365
— Ólafur Ólafsson (@olafur2811) March 15, 2017
Umfjöllun um helstu þætti leiksins má finna hér að neðan:
Gangur leiksins:
Þórsarar keyrðu upp hraðann í fyrsta leikhluta og ætluðu greinilega að láta KR hlaupa mikið og hafa fyrir hlutunum. Þetta gekk ágætlega framan og náðu gestirnir í góð stig til að halda leiknum nærri jöfnum. KR var þó alltaf skrefi á undan og leiddi 21-15 eftir fyrsta leikhlutann.
Tryggvi Snær reyndist KR gríðarlega erfiður undir körfunni og gekk illa fyrir heimamenn að búa sér til auðveldar körfur. Tryggvi þurfti að fara útaf um miðjan annan leikhluta í nokkurn tíma og þá náði KR mest 10 stiga mun sem KR hélt nánast til hálfleiks.

KR og Brynjar Þór kláruðu svo leikinnn í upphafi þriðja leikhluta. Brynjar smellti niður tveimur galopnum þriggja stiga körfum í röð eftir að varnarmenn Þórsara höfðu tvöfaldað á leikmann undur sinni körfu og komið alltof seint til baka í vörn. Munurinn skyndilega orðin 20 stig og er ævintýralega krefjandi verkefni að ætla að koma sér til baka úr því.
Þórsarar enduðu þriðja leikhluta með smá áhlaupi en það var þeirra síðasta tilraun. KR gekk endanlega frá leiknum í lokaleikhlutanum og það var sama hver kom inná hjá þeim vélin mallaði. Tryggvi Snær fór útaf um miðjan leikhluta og virtist hreinlega hafa verið of þreyttur og við það má segja að leikurinn hafi endanlega klárast. Lokastaðan 99-68 fyrir KR.
Hetjan:
Jón Arnór Stefánsson átti frábæran leik. Ekki bara því hann endaði með 18 stig, 5 fráköst og 6 stoðsendingar heldur aðallega fyrir varnarleik sinn. Jón Arnór er varnarmaður á allt öðru plani i þessari deild þegar hann er í þessum ham. Auk hans var Brynjar Þór sterkur með 24 stig en hann var með gríðarlega stórar þriggja stiga körfur til að kaffæra akureyringum.

Tryggvi Snær Hlinason var mikilvægur í dag hjá Þór. Hann breytti því hvernig sóknarleik KR spilaði, þá var Tryggvi með 5 varin skot og frábæra skotnýtingu. Enn og aftur má tala um það hversu lítið af sóknarleik Þórs fer í gegnum hann. Tryggvi er með flottar hreyfingar á blokkinni og mætti fá tækifæri á að sýna það í leik. Sindri Davíðsson kom einnig mjög öflugur inná, hann barðist allann leikinn og tókst að setja 12 stig á töfluna.
Kjarninn:
KR spilaði algjörlega frábæra vörn allan leikinn. Þeir skiptu á öllum hindrunum og mættu mönnum framarlega. Bakverðir Þórsara fengu því lítið sem ekkert pláss til að athafna sín og fjöldi þvingaðra skora gríðarlegur. Sóknarleikur KR var ekki frábær í fyrri hálfleik, boltaflæðið sem liðið er þekkt fyrir var ekki fullkomlega til staðar en liðið náði þó í 40 stig.

Tólf leikmenn settu stig á töfluna hjá KR og allir léku. Sigvaldi Eggertsson á skilið að vera nefndur þar sem hann setti sjö stig á einni og hálri mínútu í lokinn með frábærum skotum. KR setti saman heilsteypta frammistöðu í dag og þrátt fyrir nokkra hnökra í sóknarleiknum er erfitt að sjá einhvert lið eiga séns í þá ef þeir ná að spila svona alla úrslitakeppnina.
Þrátt fyrir orkumikla byrjun þá dróg fljótt úr þreki og trú Þórsara. Liðið var ekki nema með sjö villur á allt liðið í lok þriðja leikhluta og var liðið hreinlega ekki nægilega ákveðið og aggresívt í sínum aðgerðum. Segja má að liðið hafi sett leikinn í hendurnar á KR með miklum hraða í stað þess að reyna að hægja á KR sem vilja hafa gott flæði í vörn og sókn. Þórsarar þurfa að gera mun betur í næsta leik ef þeir ætla ekki í sumarfrí hratt og örugglega.


Umfjöllun / Ólafur Þór Jónsson
Myndir / Bára Dröfn




