HomeFréttirVörnin í öndvegi – Stjarnan jafnar

Vörnin í öndvegi – Stjarnan jafnar

 

Stjarnan og ÍR mættust í kvöld öðru sinni í átta liða úrslitum Domino‘s deildar karla. ÍR-ingar höfðu eins og margir vita unnið fyrsta leik liðanna í Hertz-hellinum í hörkuleik og áttu flestir von á því í sama í kvöld. Þær vonir rættust svo um munaði, því leikur kvöldsins var gríðarspennandi. 

 

Heimamenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og virtust ekki ætla að láta hræðilega skotnýtingu í fyrsta leiknum ætla að draga úr þeim kjark. Stjarnan spilaði frábæra vörn og náði loksins að láta sóknina ganga og höfðu Garðbæingar fjórtán stiga forystu að loknum fyrsta fjórðungi, 21-7. Í öðrum leikhluta voru það hins vegar gestirnir sem tóku öll veld á vellinum. Vörn heimamanna var ekki svipur hjá sjón í fjórðungnum og skyndilega voru draugar fyrsta leiksins mættir til að hrella Garðbæinga, sem hittu aðeins úr tveim af sautján skotum sínum utan af velli í leikhlutanum. Svo fór að ÍR vann annan fjórðung með 19 stigum, 10-29, og höfðu því fimm stiga forskot í hálfleik, 31-36. Skotvandræði heimamanna héldu áfram í þriðja leikhluta, en að þessu sinni fylgdu ÍR-ingar fordæmi Garðbæinga. Varnir liðanna voru heldur betur í fyrirrúmi í leikhlutanum sem fór 12-12, og ÍR því áfram með fimm stiga forskot fyrir lokafjórðunginn, 43-48. 

 

Lokafjórðungurinn hófst á svipuðum nótum og síðustu tveir leikhluta þar á undan. ÍR var einu skrefi á undan heimamönnum, en sóknarleikur liðanna var ekki upp á marga fiska. Um miðjan leikhlutann, í stöðunni 47-52 gestunum í vil, höfðu Stjörnumenn varla getað keypt sér körfu fyrir utan þriggja stiga línunna, þegar Garðbæingar skoruðu skyndilega þrjá þrista í röð þökk sé Róberti Sigurðssyni og Eysteini Bjarna Ævarssyni. Staðan var því skyndilega orðin 56-52 fyrir Stjörnunni, sem leit ekki um öxl eftir þetta og sigldi sigrinum heim. Lokatölur 64-57 og einvígið jafnt.

 

Lykillinn

 

Það er ekki ofsögum sagt að það hafi verið varnarleikur sem skóp þennan sigur Stjörnunnar. Liðið náði að halda ÍR í 57 stigum, en þar af hélt liðið gestunum undir 10 stigum í fyrsta og fjórða leihluta og 12 stigum í þeim þriðja. Þrátt fyrir að skotin hafi ekki verið að detta þá héldu þeir alltaf í við gestina með frábærum varnarleik. Þegar skotin fóru svo loks að detta í lokin náðu Garðbæingar að halda vörninni harðlæstri áfram, sem skóp frábæran sigur. 

 

 

Hetjan

 

Hlynur Bæringsson barðist fyrir hverjum einasta bolta í kvöld og var besti maður vallarins með 17 stig og 18 fráköst, auk þess sem hann tók Ryan Taylor nánast algerlega úr umferð í vörninni. Taylor lauk leik með sex stig og fimm villur. Einnig er vert að minnast aftur á þátt Eysteins Bjarna Ævarssonar, sem skoraði tvo þrista í röð sem komu heimamönnum í vænlega stöðu, 56-52, þegar skammt var eftir. Eysteinn hitti úr tveimur af þremur þriggja stiga skotum sínum í kvöld, en aðrir leikmenn Stjörnunnar hittu samtals úr fjórum af 29 þristum sínum. 

 

Framhaldið

 

Þriðji leikurinn í þessu stórskemmtilega einvígi fer fram í Hertz-hellinum, Seljaskóla, næstkomandi fimmtudag klukkan 19:15. 

 

Tölfræði leiksins.

 

Myndasafn (Bára Dröfn)

 

Viðtöl eftir leik: 

 

 

Umfjöllun / Elías Karl Guðmundsson

Viðtöl / Ólafur Þór

Myndir / Bára Dröfn

Fréttir
- Auglýsing -