Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Grindavíkur í Dominos-deild karla í körfubolta, verður áfram við störf hjá félaginu næsta vetur en hann bætir við sig og verður einnig þjálfari kvennaliðs Grindavíkur. www.visir.is greinir frá.
„Samningurinn við Sverri átti að renna út í sumar en hann er búinn að skrifa undir nýjan tveggja ára samning. Það er frágengið að hann þjálfar bæði karla- og kvennaliðið næstu tvö árin,“ segir Lórenz Óli Ólason, stjórnarmaður í kkd. Grindavíkur, við Fréttablaðið.
Sverrir gerði karlaliðið að Íslandsmeisturum á síðasta tímabili og bikarmeisturum í febrúar á þessu ári. Liðið er nú komið í undanúrslit Íslandsmótsins þar sem það mætir Njarðvík.
Kvennaliðið olli miklum vonbrigðum á tímabilinu en það endaði í 7. sæti. Jón Halldór Eðvaldsson lét af störfum sem þjálfari í byrjun febrúar og Lewis Clinch, bandarískur leikmaður karlaliðsins, stýrði því út tímabilið.



