Pavel Ermolinskij verður ekki með íslenska landsliðinu á móti Ísrael í Laugardalshöllinni á morgun en hann er ekki orðinn nógu góður af nárameiðslunum sem hann varð fyrir í upphitun fyrir Slóvakíuleikinn á laugardaginn. www.visir.is greinir frá.
Ákvörðunin um að hvíla Pavel var tekin í samráði við lækni og sjúkraþjálfara en hann hefur verið í meðferð síðan að hann meiddi sig. Vonir standa til þess að Pavel verði orðinn leikfæri fyrir leikinn í Svartfjallalandi á föstudaginn.






