Chris Caird, stórskytta Tindastóls í Domino´s-deild karla í körfubolta, verður frá keppni næstu vikurnar vegna meiðsla en hann missti af síðasta leik liðsins gegn Keflavík á heimavelli. Visir.is greinir frá.
Caird er meiddur á hné og fór í aðgerð í Reykjavík í dag. „Við ákváðum að nýta tímann fyrst það er hlé vegna bikarsins og senda hann í aðgerð núna,“ segir Stefán Jónsson, formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls, við Vísi.