HomeFréttirVirðast ekki vera vanar að spila undir mikilli pressu

Virðast ekki vera vanar að spila undir mikilli pressu

Fjórði leikur sextán ára landsliðs stúlkna á Norðurlandamótinu í Kisakallio í Finnlandi var háður í dag þar sem liðið atti kappi við sterka sveit Dana. Íslensku stúlkurnar sýndu mikinn baráttuanda í þessari krefjandi viðureign en urðu á endanum að lúta í lægra haldi fyrir firna sterku dönsku liði.

Þegar flautað var til leiksloka reyndust lokatölur vera 67-88 Danmörku í vil, eftir leik þar sem íslenska liðið sýndi ágæta spretti inn á milli án þess þó að það dygði til að knýja fram sigur.

Hérna er meira um leikinn

Karfan spjallaði við Hákon Hjartarson þjálfara Íslands eftir leik í Kisakallio.

Fréttir
- Auglýsing -