IBA hefur nú auglýst eftir sjálfboðaliðum til að starfa í kringum HM 2014 sem fram fer á Spáni. Ef þú ert 18 ára átt þú kost á að fylla út umsókn og freista gæfunnar. Leitað er að starfsmönnum í hin ýmsu störf í kringum þetta risavaxna mót, allt frá hefðbundnum þjónustustörfum upp í tæknilega aðstoðarmenn.
FIBA tekur fram að fyrir utan reynsluna og einstaka upplifununa sé það gott á ferilskrá einstaklinga að vera valinn til þátttöku í verkefninu.
Sem dæmi má nefna að leitað er að spænskumælandi einstakling sem sé einnig góður í enskri tungu. Sá aðili gæti fengið það hlutverk að vera aðstoðarmaður og tengiliður eins af liðunum á mótinu og er skýrt tekið fram að hann verði með liðinu öllum stundum í kringum æfingar og leiki. Ekki amalegt að aðstoða til dæmis lið Bandaríkjanna fyrir körfuboltasjúka áhugamenn.
Nánar er hægt að lesa um skilyrði og hæfniskröfu í umsókn sjálfboðaliða fyrir HM2014 hérna.
Mynd/ Bandaríkjamenn þykja oftar en ekki sigurstranglegastir á HM sem og Ólympíuleikum.



