Eina íslenska körfuboltaliðið í Kaupmannahöfn, IF Guðrún, óskar eftir leikmönnum. Liðið er skipað Íslendingum sem búsettir eru á Kaupmannahafnarsvæðinu.
Leikmannahópurinn er afar fjölbreytilegur og er skipaður mönnum með mjög mismunandi mikla reynslu og hæfileika, þar sem sumir hafa hafið feril sinn hjá félaginu á meðan aðrir hafa jafnvel spilað A-landsleiki. Liðið spilar í deild fyrir lið innan Kaupmannahafnarsvæðisins. Æfingar eru tvisvar sinnum í viku og leikir eru að meðaltali einu sinni í viku. Æfingargjöld eru 500 dkk fyrir heilt ár.
Þeir sem huga á flutning/eru fluttir til Kaupmannahafnar eða nágrennis eru meira en velkomnir á æfingar. Hægt er að finna allar upplýsingar um deildina á Facebook undir hópnum Gudrun Basket.






