spot_img
HomeFréttirVilt þú forðast biðröðina í Ásgarði í kvöld?

Vilt þú forðast biðröðina í Ásgarði í kvöld?

 

Blásið verður til veislu í kvöld í Ásgarði þar sem að heimamenn í Stjörnunni taka á móti ÍR í þriðja leik 8 liða úrslita Dominos deildar karla. Leikurinn hefst kl. 20:00, en húsið opnast kl. 19:00 og eru bæði pítsur og hamborgarar í boði frá kl. 19:10. Eins og fleiri lið þá er Stjarnan nú farin að selja miða á leiki sína í gegnum miðasöluvef og geta aðdáendur með þeirri leið sleppt við að bíða í röð til þess að ná sér í miða á leikinn.

 

Ljóst er að um hörkuleik verður að ræða, þar sem stuðningsmenn ÍR, Ghetto Hooligans, hafa lofað því að mæta með Breiðholtið eins og það leggur sig í Ásgarð, en tapi þeir leiknum fara þeir í snemmbúið sumarfrí.

 

Hérna er hægt að kaupa miða á leik Stjörnunnar og ÍR í kvöld

 

 

 

 

Fréttir
- Auglýsing -