spot_img
HomeFréttirVíðir vann 2:0 og varð meistari

Víðir vann 2:0 og varð meistari

Það gerist margoft að leikir ráðast á vítalínunni.  Mikilvægustu skot leiksins vilja sumir meina og það er óhætt að segja að þau hafi verið rándýr þau víti sem að Jóhann á Hrauni setti niður hér fyrir ca 40 árum í úrslitum um Austurlandsmeistaratitilinn.  Ekki bara urðu þetta örlagastig leiksins heldur einnig þau einu.  Jóhann stigahæstur með 2 stig og hefði verið valinn Lykilmaður leiksins hefði sú nafnbót eflaust fallið í hans hendur. 
 
Víðir Sigurðsson umsjónamaður íþróttadeildar hjá Morgunblaðinu segir frá ansi skemmtilegri sögu af honum sjálfum í “Bakverði”  Morgunblaðsins  þar sem einmitt þessi saga sem reifað er í hér að ofan er sögð frá byrjun til enda. 
 
 
Fréttir
- Auglýsing -