Úrslitin í ACB deildinni á Spáni hófust í gær þar sem Barcelona náði 1-0 forystu í einvíginu með svaðalegum flautuþrist frá Huertas en það voru einu stig kappans í leiknum og vógu heldur betur þungt!
Juan Carlos Navarro fór fyrir Barcelona með 21 stig, Erazem Lorbek bætti við 18 og 5 fráköstum og Pete Mickeal gerði 17 stig og tók sömuleiðis 5 fráköst. Hjá Real Madrid var Jaycee Carroll með 18 stig og þeir Kyle Singler frá Duke háskólanum og Sergio Llull bættu báðir við 11 stigum.
Mynd/ Huertas fagnar sigurkörfunni sinni í gær.





