Undir 20 ára lið kvenna leikur þessa dagana í A deild Evrópumótsins í Matosinhos í Portúgal.
Liðið hefur þegar náð sögulegum árangri á mótinu með því að komast í átta liða úrslit mótsins. Lengra komust þær þó ekki, en í átta liða úrslitunum töpuðu þær fyrir sterku liði Litháen. Mótinu var þó ekki lokið með því hjá liðinu, en í dag töpuðu þær fyrir Belgíu í fyrri leik umspils um sæti 5 til 8 á mótinu, 90-75.
Karfan spjallaði við Kolbrúnu Ármannsdóttur leikmann Íslands eftir leik í Matosinhos, en hún var stigahæst í liðinu í dag með 21 stig.



