spot_img
HomeBikarkeppniVerður leitt áfram af Ægi og Luka Gasic sem munu vera bestu...

Verður leitt áfram af Ægi og Luka Gasic sem munu vera bestu menn leiksins

Úrslitaleikir VÍS bikarkeppninnar verða leiknir í Smáranum í dag laugardag. Fyrri leikurinn er leikur KR og Stjörnunnar í meistaraflokki karla, en sá seinni er á milli Keflavíkur og Grindavíkur í meistaraflokki kvenna.

Karfan fékk nokkra málsmetandi aðila til þess að spá fyrir um leikina tvo. Viðar Örn Hafsteinsson þjálfari Hattar og aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins spáir því að Grindavík og Stjarnan eigi eftir að vinna

Hérna eru allir leikir VÍS bikarvikunnar

Úrslitaleikur karla – KR gegn Stjörnunni

Hvernig fer leikurinn? Stjarnan vinnur með 3 stigum í hörkuleik

Hvernig á hann eftir að spilast?

Verður kaflaskipt. Stjarnan á eftir að byrja betur, hafa verið að koma og keyra yfir lið til að byrja með í síðustu leikjum. Svo kemst þetta í jafnvægi og KR munu eiga séns í lokin en Stjarnan klárar þetta. Meiri gæði og breidd í Stjörnuliðinu sem verður leitt áfram af Ægi og Luka Gasic sem munu vera bestu menn leiksins.

Úrslitaleikur kvenna – Grindavík gegn Keflavík

Hvernig fer leikurinn? Grindavík vinnur með 10-15 stigum

Hvernig á hann eftir að spilast?

Verður jafnt framan af en Grindavík mun ná stjórn þegar líður á seinni hálfleik. Grindavík klárar þetta svo sannfærandi og verður ekki spenna í lokin. Abby Beeman mun stýra umferðinni og eiga stórleik.

Fréttir
- Auglýsing -