8:45
{mosimage}
Eins og körfuknattleiksunnendur hafa eflaust tekið eftir hafa Skallagrímsmenn og Ken Webb ekki endurnýjað samning sinn fyrir næsta vetur og sagði Webb í viðtali að hann ætlaði að klára núverandi samning sem er út júní.
Karfan.is hefur fyrir því heimildir að ekki sé víst að Webb verði áfram í Borgarnesi en hann mun m.a. vera í viðræðum við danska félagið Randers sem nýlega missti þjálfara sinn, Flemming Stie, til Þýskalands. Það er því ekki ólíklegt að Webb sé að hverfa á braut af landinu enda býr kona hans og barn í Árósum og því hentugt fjölskyldulega séð að þjálfa í Randers.
Mynd: [email protected]