HomeBónus deildinBónus deild karlaVerða KR og Njarðvík send í sumarfrí í kvöld?

Verða KR og Njarðvík send í sumarfrí í kvöld?

Tveir leikir fara fram í átta liða úrslitum Bónus deildar karla í kvöld.

Í IceMar-höllinni tekur Njarðvík á móti Grindavík klukkan 19:00, þar sem mikið er í húfi fyrir bæði lið. Grindvíkingar leiða einvígið 2-1 og geta með sigri í kvöld tryggt sér sæti í undanúrslitum við hlið Tindastóls. Njarðvíkingar standa hins vegar frammi fyrir úrslitaleik upp á líf og dauða og verða að knýja fram sigur á heimavelli til að halda tímabilinu gangandi og tryggja sér oddaleik.

Sama spenna ríkir á Meistaravöllum klukkan 19:30 þegar KR mætir Stjörnunni í fjórðu viðureign liðanna. Stjarnan er í kjörstöðu með 2-1 forystu í einvíginu og þarf aðeins einn sigur til viðbótar til að senda Vesturbæinga í sumarfrí. KR-ingar eru hins vegar hvergi nærri hættir og munu leggja allt í sölurnar til að jafna metin fyrir framan sína stuðningsmenn og knýja fram fimmta leikinn í Garðabæ.

Leikir dagsins

Bónus deild karla – 8 liða úrslit

Njarðvík Grindavík – kl. 19:00

KR Stjarnan – kl. 19:30

Fréttir
- Auglýsing -