spot_img
HomeFréttirVerða Grindavík eða Haukar í fallsæti yfir jólin?

Verða Grindavík eða Haukar í fallsæti yfir jólin?

 

Þrír leikir fara fram í dag í Dominos deild kvenna. Þessir leikir eru þeir síðustu sem spilaðir verða þangað til eftir jól. Fyrir utan topplið Keflavíkur (sem vann Val í gær) geta öll liðin annaðhvort farið upp eða niður í töflunni eftir þessa umferð. Spennandi verður því að sjá hvernig leikir dagsins fara.

 

Snæfell getur endað í 2. eða 3. sæti

Skallagrímur getur endað í 2. eða 3. sæti

Stjarnan getur endað í 4. eða 5. sæti

Valur getur endað í 5. eða 6. sæti

Njarðvík getur endað í 4., 5. eða 6. sæti

Grindavík getur endað í 7. eða 8. sæti

Haukar geta endað í 7. eða 8. sæti

 

 

Staðan í deildinni

 

 

Leikir dagsins

 

Dominos deild kvenna:

Snæfell Grindavík – kl. 15:00

Njarðvík Skallagrímur – kl. 15:30

Stjarnan Haukar – kl. 16:30 í beinni útsendingu Stöð 2 Sport

Fréttir
- Auglýsing -