spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaVegabréfið: Dominykas Milka

Vegabréfið: Dominykas Milka

Fyrstur í Vegabréfinu er leikmaður Njarðvíkur Dominykas Milka.

Dominykas kom fyrst til Íslands til þess að spila fyrir Keflavík árið 2020. Þar lék hann í nokkur ár og fór meðal annars í úrslit áður en hann skipti yfir til erkifjenda þeirra í Njarðvík þar sem hann hefur leikið síðustu ár. Á árum sínum á Íslandi hefur hann verið einn af framlagshærri leikmönnum deildarinnar, en á yfirstandandi tímabili er hann að skila 13 stigum, 8 fráköstum og 3 stoðsendingum að meðaltali í leik

Hvaðan ertu? Upprunalega frá Litháen en bjó í New York-borg síðan 2006.

Hvað hefur komið þér mest á óvart við að spila á Íslandi? Gæðin á körfuboltanum (stig deildarinnar).

Ef þú gætir tekið einn erlendan leikmann úr öðru liði og bætt við þitt lið, hver yrði það? Seth LeDay – ég held að við myndum bæta hvorn annan vel upp.

Ef þú værir ekki körfuboltamaður, í hvaða annarri íþrótt værir þú að keppa? Ég held að ég gæti náð árangri í amerískum fótbolta eða handbolta.

Hver er besti leikmaður sem þú hefur spilað með? Ég yrði að segja að það væri Tristan Thompson.

Hvert er stærsta augnablikið á ferlinum hingað til? Sérhver leikur þar sem móðir mín er viðstödd til að sýna henni hvernig draumur hennar hefur ræst.

Hver er uppáhaldsleikmaðurinn þinn í sögunni? LeBron James.

Ertu með einhverja hjátrú eða hefðir fyrir leiki? Já, nokkrar: blundur fyrir leik, vakna og drekka svart kaffi með nokkrum bitum af dökku súkkulaði, og biðja áður en ég hleyp inn á völlinn.

Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í heiminum? Hvaða staður sem er þar sem ég er með fólkinu sem ég elska. Það væri gott að hafa sól og vatn í kring, en það er bara bónus.

Hver er uppáhaldstónlistarmaðurinn þinn? Ég á engan einn sérstakan; það breytist eftir skapi og hvar ég er staddur andlega.

Hvað borðar þú alltaf fyrir leik? Kjúkling og pasta.

Hvaða önnur áhugamál hefur þú utan íþrótta? Ég hef gaman af því að lesa, spila tölvuleiki, ferðast um heiminn og skapa minningar með ástvinum mínum.

Hvert er uppáhaldsliðið þitt í NBA? Ég á ekkert eitt uppáhalds, en ég held með liðunum frá New York og hvaða liði sem LeBron spilar með.

Hvert er dýraandinn þinn (spirit animal)? Miðað við nýjasta prófið (fyrir 5 mínútum) þá er dýraandinn minn úlfur.

Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn á Íslandi? Heitu lækirnir í Reykjadal.

Fréttir
- Auglýsing -