spot_img
HomeFréttirVarnarmúr Íslands lykillinn að titlinum!

Varnarmúr Íslands lykillinn að titlinum!

 
Ísland er Norðurlandameistari í körfuknattleik árið 2010 í flokki U16 ára karla. Liðið mætti heimamönnum í Svíþjóð í úrslitaviðureigninni og hreinlega valtaði yfir gestgjafa sína. Lokatölur leiksins voru 82-54 Íslandi í vil. Valur Orri Valsson átti magnaðan dag í íslenska liðinu með 22 stig, 5 stoðsendingar og 4 fráköst. Næstur honum var Martin Hermannsson með 21 stig, Maciej Baginski gerði 15 stig og Matthías Orri Sigurðarson kom sterkur af bekknum með 14 stig. Þá var miðherjinn öflugi Stefán Karel Torfason hreint út sagt magnaður með 9 fráköst og 4 stig og var sannarlega límið sem batt saman glæsilega vörn Íslands.
Valur Orri Valsson var valinn besti maður leiksins en maður mótsins var valinn Martin Hermannsson sem einnig var einn Íslendinga valinn í úrvalslið mótsins.
 
Valur Orri Valsson opnaði stigareikning Íslands með þriggja stiga körfu og um leið hófst einhver besti leikhluti liðsins á mótinu. Ísland byrjaði í svæðisvörn sem Svíar áttu erfitt með að leysa og Íslendingar hvergi bangnir röðuðu inn stigum á hinum enda vallarins.
 
Liðsfélagarnir frá Njarðvík þeir Valur Orri og Maciej Baginski voru á tánum frá fyrstu mínútu, Valur breytti stöðunni í 11-7 með þrist og Baginski tók við keflinu með öðrum slíkum og staðan 14-7. Enn var Valur Orri á ferðinni fyrir utan þriggja stiga línuna þegar hann breytti stöðunni í 29-15. Þorgrímur Kári Emilsson átti svo lokaorðið fyrir Ísland í þessum rosalega upphafsleikhluta er hann náði sóknarfrákasti og skoraði um leið og flautan gall og staðan 31-17 fyrir Ísland eftir 10 mínútna leik, ótrúleg byrjun og Svíar vissu vart hvaðan á sig stóð veðrið.
 
Hrakfarir Svía héldu áfram því Martin Hermannsson opnaði annan leikhluta með þriggja stiga körfu, 34-22. Martin var hvergi nærri hættur heldur rann æði á manninn sem gerði 9 stig í röð fyrir Íslands hönd og réttnefndur ,,Solo Martinez.“ Svíar tóku leikhlé og mættu til baka með svæðisvörn sem hægði verulega á íslenska liðinu, um leið og Svíar duttu í svæði hættu Íslendingar að hitta og heimamenn náðu að minnka muninn í 48-39 og þannig stóðu leikar í hálfleik.
 
Valur Orri og Martin voru báðir með 14 stig í hálfleik og Maciej Baginski var að leika fantavel með 11 stig.
 
Einbeiting og festa eru kannski best til þess fallin að lýsa leik íslenska liðsins í síðari hálfleik. Vörnin var glæsileg og Svíar sáu ekki til sólar, gerðu aðeins 8 stig í 3. leikhluta gegn 16 frá Íslandi og staðan því 64-47 fyrir lokasprettinn. Matthías Orri Sigurðarson setti tvo stóra þrista undir lok þriðja leikhluta og sást það langar leiðir að þeir sviðu sem salt í svöðusár heimamanna.
 

Fjórði leikhluti var ekki ósvipaður þeim þriðja og Svíar náðu aðeins að skora 7 stig í leikhlutanum og því settu þeir aðeins 15 stig á Ísland á þessum 20 mínútum í síðari hálfleik. Rosaleg vörn Íslands færði þeim því Norðurlandameistaratitilinn árið 2010 og strákarnir ásamt þjálfara liðsins, Einari Árna Jóhannssyni, fögnuðu líkt og enginn væri morgundagurinn. Þess má geta að gullkálfurinn Ingi Þór Steinþórsson var Einari innan handar á bekknum og hefur gullæðið úr Hólminum væntanlega smitast inn í íslenska liðið.

 
Lokatölur reyndust að endingu vera 82-54 Íslandi í vil þar sem Valur Orri Valsson var verðskuldað valinn besti maður úrslitaleiksins með 22 stig, 4 fráköst, 5 stoðsendingar og 3 stolna bolta.
 
Á heildina telfdi Ísland fram sterku og jöfnu liði í U16 ára karla þetta árið, allir þeir sem komu inn af bekknum stóðu sig ekki síður en þeir sem voru í byrjunarliðinu og varnarleikur liðsins er eitthvað sem ætti að koma í kennslubók í snarhasti.
 
Stigaskor íslenska liðsins
Valur Orri Valsson – 22 stig, 5 stoðsendingar, 4 fráköst, 3 stolnir boltar
Martin Hermannsson – 21 stig
Maciej Baginski – 15 stig, 4 fráköst
Matthías Orri Sigurðarson – 14 stig, 3 fráköst
Stefán Karel Torfason – 4 stig, 9 fráköst, 2 stoðsendingar
Jens Valgeir Óskarsson – 2 stig
Þorgrímur Kári Emilsson – 2 stig
Emil Karel Einarsson – 2 stig, 7 fráköst
 
Byrjunarlið Íslands: Valur Orri Valsson, Martin Hermannsson, Maciej Baginski, Emil Karel Einarsson, Stefán Karel Torfason.
 
Ljósmynd/ [email protected] – Efri mynd: Efri röð frá vinstri Lárus Friðfinsson, Ingi Þór Steinþórsson, Stefán Karel Torfason, Svavar Ingi Stefánsson, Þorgrímur Kári Emilsson, Jens Valgeir Óskarsson, Emil Karel Einarsson fyrirliði, Einar Árni Jóhannsson, Erlingur Arthursson. Neðri röð frá vinstri: Maciej Stanislav Baginski, Martin Hermannsson, Sigurður Dagur Sturluson, Matthías Orri Sigurðarson, Elvar Már Friðriksson, Oddur Rúnar Kristjánsson, Valur Orri Valsson.
 
Neðri mynd: Martin Hermannsson besti maður mótsins ásamt foreldrum sínum þeim Hermanni Haukssyni og Margréti Elíasdóttur.

Fréttir
- Auglýsing -