Valur lék sinn annan leik eftir skiptinguna í Bónusdeild kvenna, þegar þær fengu Haukakonur í heimsókn.
Liðin unnu hvort annað í fyrri viðureignum, bæði á útivelli. Leikurinn var skrítinn, mikið af mistökum en gestirnir alltaf með undirtökin og enduðu á að vinna stórt 59-85.
Karfan spjallaði við Emil Barja þjálfara Hauka eftir leik í N1 höllinni.





