Það var boðið upp á mikla spennu í Laugardalshöll þegar Ármann tók á móti Stjörnunni í Bónus deild kvenna í kvöld.
Eftir mikla baráttu voru það gestirnir úr Garðabæ sem fögnuðu dýrmætum fimm stiga sigri, 83-88, í leik sem einkenndist af miklum sveiflum og góðri einstaklingsframmistöðu á báða bóga.
Karfan spjallaði við Berglindi Kötlu Hlynsdóttur leikmann Stjörnunnar eftir leik í Laugardalshöllinni. Berglind átti afar góðan leik fyrir Stjörnuna í dag, með 22 stig, 7 fráköst og 5 stoðsendingar á rúmum 33 mínútum spiluðum.





