Það var allt undir í Icelandic Glacial höllinni í kvöld þegar Þór Þorlákshöfn tók á móti Njarðvík í næstsíðustu umferð Bónus deildarinnar.
Fyrir leikinn var staða liðanna ólík; Þórsarar berjast fyrir lífi sínu í deildinni á meðan Njarðvíkingar þurftu sigur til að tryggja sæti sitt í úrslitakeppninni. Niðurstaðan varð hins vegar algjör einstefna þar sem heimamenn sýndu ótrúlegan styrk og unnu að lokum 37 stiga sigur, 109–72.
Karfan spjallaði við Lárus Jónsson þjálfara Þórs eftir leik í Þorlákshöfn.





