spot_img
HomeBikarkeppniValur VÍS bikarmeistari í 10. flokki drengja

Valur VÍS bikarmeistari í 10. flokki drengja

Valur varð VÍS bikarmeistari karla í 10. flokki drengja í kvöld eftir sigur gegn Stjörnunni í úrslitaleik,

Leikurinn var annar bikarúrslitaleikur dagsins, en þann fyrri vann Stjarnan, gegn Val, fyrr í 9. flokki stúlkna.

Fyrir leik

Á leið sinni í bikarúrslitin hafði Valur lagt Hauka nokkuð örugglega í Hafnarfirði á meðan Stjarnan vann heimamenn í Keflavík í hörkuleik.

Stjarnan hefur ekki enn tapað í deildarkeppni þessa tímabils eftir 14 leiki. Valur er öllu neðar í tötflunni, í 4. sætinu með 7 sigra í fyrstu 11 leikjum sínum.

Liðin leikið innbyrðis í tvígang í deildarkeppninni og Stjarnan unnið báða. Nokkuð örugglega í Hlíðunum um miðjan október og svo aftur, í öllu jafnari leik, heima í Garðabæ í byrjun árs.

Gangur leiks

Það er óhætt að segja að Valsdrengir hafi mætt vel gíraðir til leiks. Láta sóknarþunga sinn dynja á Stjörnunni fyrstu mínúturnar og eru snöggir að komast vel á undan. Stjarnan nær þó áttum eftir því sem líður á fjórðunginn, en munurinn að fyrsta fjórðung loknum eru 11 stig, 22-33 fyrir Val.

Áfram hefur Valur góð tök á leiknum í öðrum fjórðungnum. Ekki síst vegna stjörnuleiks Atla Freys Haraldssonar Katrínarsonar sem þeir réðu ekkert við. Var kominn með 23 stig í fyrri hálfleiknum, en þegar hann er á enda er munurinn 14 stig, 37-51.

Stigahæstur fyrir Stjörnuna í hálfleik er Jón Breki Sigurðarson með 10 stig á meðan áðurnefndur Atli Freyr er með 23 stig fyrir Val í hálfleik.

Stemningin virðist öll áfram vera með Valsdrengjum í byrjun seinni hálfleiksins. Vörnin þeirra er ágæt og þeir ná í þó nokkur skipti að keyra í bakið á Stjörnunni eftir tapaða bolta. Forskotið nokkuð þægilega þeirra allan þriðja fjórðunginn, en staðan er 59-81 fyrir Val fyrir lokaleikhlutann.

Stjarnan hefur þann fjórða á kraftmiklu 5-0 áhlaupi. Valur nær snögglega að stöðva blæðinguna, setja plástur á sárið og hafa góð tök á leiknum út leikinn. Sigur þeirra aldrei í hættu á lokamínútunum, en að lokum hafa þeir 19 stiga sigur, 80-99.

Stigahæstir

Atli Freyr var stigahæstur fyrir Val í leiknum með 30 stig, en hann var valinn besti leikmaður úrslitaleiksins að honum loknum. Næstur honum var Pétur Magnús Sigurðsson með 16 stig.

Fyrir Stjörnuna var Kormákur Nói Jack stigahæstur með 22 stig og honum næstur var Jón Breki með 16 stig.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -