spot_img
HomeFréttirValur meistari 2. deildar 9. flokks drengja

Valur meistari 2. deildar 9. flokks drengja

Valur varð um helgina meistari 2. deildar 9. flokks drengja eftir sigur gegn Haukum í úrslitaleik á Meistaravöllum, 60-49. Leikurinn var jafn mest allan tímann, þó Valsmenn hefðu leitt mestan hluta hans, og höfðu sigur. Stormur Kiljan Traustason var valinn maður leiksins, en hann skilaði 24 stigum, 7 fráköstum og 2 stolnum boltum.

Hér fyrir ofan má sjá mynd af sigurliðinu, en þjálfari þeirra er Ágúst Björgvinsson.

Mynd / KKÍ

Fréttir
- Auglýsing -