Valsmenn féllu úr úrvalsdeild á síðustu leiktíð eftir langa baráttu fyrir sæti í deild þeirra bestu. Sú barátta er nú hafin en nokkrar breytingar hafa orðið að Hlíðarenda og segir Ágúst Sigurður Björgvinsson þjálfari liðsins að 1. deildin leggist vel í sína menn og að fleiri ungir leikmenn muni fá tækifæri.
Hvernig hefur sumarið gengið?
Sumarið hefur gengið vel, við höfum haldið flestum af okkar lykil leikmönnum og bætt svo góðum mönnum við. Liðið hefur æftt vel og verið í stífu prógrammi frá því í byrjun júní.
Hvaða breytingar hafa orðið á hópnum?
Hópurinn verður svipaður, höldum lykilmönum eins og Alexander Dungal, Benedikt Blöndal, Birgi Birni Péturssyni, Kristni Ólafssyni og Ragnari Gylfasyni. Eins höfum við bætt góðum mönnum við eins og Rúnari Inga. Við stefnum á að bæta einhverjum fleirum við sem verður tilkynt síðar í þessum mánuði.
Hvernig leggst 1. deildin í þig undir 4 plús 1 reglunni?
1. deildin leggst vel í okkur, gefur okkur tækifæri til að byggja liðið enn betur upp fyrir framtíðina. Það hjálpar mikið til að vera með aðeins einn erlendan leikmann og mun gefa fleiri ungum mönnum á borð við Hlyn Vikingsson tækifæri til að þroskas og þróast sem leikmenn.
Við hverju býst þú á næstu leiktíð, hverjir finnst þér líklegir í toppbaráttuna?
Tel að 1. deildin verði skemtileg þar sem Íslendingar verða í aðalhlutverkum öðruvísi en undanfarin ár, síðustu tvö tímabil hafa lið með um þrjá erlenda leikmenn verið að sigra deildina og vægi erlendra leikmanna mjög mikið. Þetta gæti mögulega komið niður á styrkleika deildarinnar en held engu að síður að körfuboltinn verði skemtilegur.
Hvernig metur þú möguleika þíns liðs?
Við erum með flottan kjarna af leikmönnum, ef við æfum vel, spilum saman sem lið eru möguleikarnir í okkar hendi.
Valsmenn hefja leik í 1. deild þann 12. október þegar þeir mæta nýliðum Reynis úr Sandgerði fyrir sunnan.






